Kominn er tími á viðhald útivistarsvæðis milli Grenibyggðar og Furubyggðar.
Ástandi göngustígs og útivistarsvæðis á milli Grenibyggðar og Furubyggðar hrakar ár frá ári. Það þarf að taka upp göngustíginn og endurnýja malbikið, setja niðurföll og draga úr líkum á að vatn renni af göngustígnum inn í garða. Sömuleiðis þarf að hressa upp á grasflötina og leiksvæðið, sem er afar mikilvægt öryggissvæði fyrir börnin á svæðinu.
Nú hafa 30 verkefni verið valin í íbúakosningu Okkar Mosó 2019 17.-28.maí. Þessi hugmynd var ekki valið í kosningu en verður sent sem ábending til þjónustustöðvar eða viðeigandi aðila til nánari skoðunar eða framkvæmda. Við hvetjum þig til þess að taka þátt í að velja hugmyndir og að hvetja alla Mosfellinga 15 ára og eldri til þess að kjósa hér: kosning2019.mos.is. Nánari upplýsingar er að finna á mos.is/okkarmoso
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation