Gönguskíðabraut lögð í Reykjalundsvæði eða Ullarnessvæði
Hægt væri að æfa og stunda gönguskíði allt árið með að leggja gerfi snjómottur í netta braut.
Þetta er frábær hugmynd og ég vissi ekki að þetta væri til. Reykjalundur getur þá líka nýtt brautina fyrir endurhæfinguna. Það er svo erfitt að stóla á snjóinn, ef hægt er að stunda þetta allt árið um kring er auðveldara fyrir fólk að komast inn í sportið. Gönguskíði njóta líka mikilla vinsælda um þessar mundir, mjög góð og holl hreyfing.
Nú hafa 30 verkefni verið valin í íbúakosningu Okkar Mosó 2019 17.-28.maí. Þessi hugmynd var ekki valin að þessu sinni eða önnur sambærileg hugmynd valin. Við hvetjum þig til þess að taka þátt í að velja hugmyndir og að hvetja alla Mosfellinga 15 ára og eldri til þess að kjósa hér: kosning2019.mos.is. Nánari upplýsingar er að finna á mos.is/okkarmoso
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation